Blog Layout

Grunnfærni í læsi, stærðfræði og erlendum tungumálum

Tinna Pálsdóttir • 6. desember 2024

Grunnfærni í læsi, stærðfræði og erlendum tungumálum 

Einföld leið fyrir foreldra og skóla til að kanna færni barna.
 
Grunnfærni í læsi, stærðfræði og erlendum tungumálum er undirstaða menntunar og lykill að því að virkja einstaklinga til þátttöku í námi, starfi og samfélagi. Þessir þættir mynda grunnstoðir sem styðja við þróun þekkingar, færni og sjálfstæðra vinnubragða sem nýtast alla ævi.

Læsi nær yfir hæfnina að lesa, skrifa og skilja texta á fjölbreyttum formum. Hægt er að meta hæfni á kerfisbundinn hátt til dæmis með einföldum matskvörðum á sama tíma og barnið les, ræðir og útbýr skemmtileg ritunarverkefni. Skólablaðið er skemmtilegt námsferli sem hægt er að vinna með nemendum þar sem þau þjálfast í fjölbreyttum aðferðum læsis. 

Stærðfræðileg grunnfærni snýst um skilning á grunnatriðum eins og reikniaðgerðum, rúmfræði og tölfræði. Reglulegt mat á stöðu nemenda veitir kennurum og foreldrum tækifæri til að greina þörf fyrir stuðning og finna leiðir til að efla skilning á mikilvægum þáttum.

Verkefnið Herbergið mitt  sem er til á öllum 3 stigum grunnskólans er verkefni sem hægt er að vinna heima og í skóla og kemur inn á almennan reikning, tölulæsi og rúmfræði ásamt öðrum faggreinum. 
Hér er annað dæmi um verkefni sem hægt er að vinna heima og í skólanum þar sem reynir á grunnfærni í stærðfræði á sama tíma og bekkurinn eða fjölskyldan endurgerir raunverulega byggingu eða verur í piparkökuhúsaformi! 

Tungumálanám, sérstaklega í ensku, opnar dyr að heiminum og er mikilvægt til að undirbúa nemendur fyrir alþjóðlegt samfélag. Margir nemendur búa yfir ótrúlegri færni á sumum sviðum í erlendum tungumálum og mikilvægt er að þeir fái verkefni í samræmi við tungumálagetu sína.
Evrópski tungumálaramminn (CEFR) getur veitt nemendum og foreldrum skýra mynd af færnistigi þeirra í hlustun, tjáningu, ritun og menningarlæsi. Einföld leið til að kortleggja grunnfærni nemenda í erlendum tungumálum er að nýta þennan matsramma til að sjá hvar þeir standa. Evrópski tungumálaramminn býður upp á sjálfsmat á öllum helstu tungumálum Evrópu.

Grunnfærni í læsi, stærðfræði og erlendum tungumálum er því ekki einungis mikilvægt verkfæri fyrir skólagöngu, heldur einnig fyrir lífið sjálft. Með skýrri stefnu, stöðugu mati og einstaklingsmiðaðri nálgun er hægt að tryggja að nemendur fái þann stuðning sem þeir þurfa til að ná sínum fulla möguleika.

Gott samstarf heimilis og skóla ásamt skilvirku kerfi sem kortleggur persónumiðaðar framfarir hvers og eins er eitt af lykilatriðum að velferð nemenda. Skapandi og skemmtileg verkefni eru lykillinn að góðu samstarfi við nemendur. Mikilvægt er að stór hluti skóladagsins gefi rými fyrir nám sem einkennist af sköpun og verkefnum sem vekja áhuga og gleði hjá nemendum.

Eftir Kristrún Birgisdóttir 7. mars 2025
Á undanförnum árum höfum við hjá Ásgarð skólaráðgjöf unnið að því að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um menntamál með því að gefa út Hlaðvarp Ásgarðs um menntamál. Hingað til höfum við gefið út 19 þætti, þar sem megin þemað hefur verið gæðamál. Þættirnir eru því oft og sérstaklega nýjustu sex þættirnir byggðir á viðmiðum um gæðastarf og eru hannaðir til að styðja kennara, skólastjórnendur og aðra sem starfa í menntakerfinu við að þróa og bæta skólastarf. Í þáttunum ræðum við við gesti og ráðgjafa Ásgarðs, sem veita innsýn í lykilhugtök og aðferðir sem styðja við markvissa og árangursríka skólaþróun. Við höfum lagt ríka áherslu á að tengja umræðuna við praktískar lausnir og reynslu úr vettvangi skólastarfs, þannig að hlustendur geti nýtt sér þekkinguna í eigin starfi. Hlaðvarpsþættirnir fjalla meðal annars um: Viðmið um gæðastarf - hvað einkennir góðan skóla og hvernig getum við unnið markvisst að umbótum? Nemendamiðað nám – aðferðir sem styrkja þátttöku og ábyrgð nemenda á eigin námi. Leiðsagnarmat og námsmat – hvernig við metum nám og framfarir á árangursríkan hátt. Faglegt lærdómssamfélag – hvernig kennarar og starfsfólk geta unnið saman að betri menntun og auknum gæðum í leik- námi og kennslu. Hagnýtar lausnir í skólastarfi – leiðir til að innleiða nýjar aðferðir í skólastarfi með áherslu á að deila reynslu og áætlunum sem nýtast í starfi. Hlaðvarpið hefur verið frábær leið til að miðla þekkingu og viðbrögðin hafa verið góð! Markmið okkar er að halda áfram að efla þessa umræðu og bjóða hlustendum upp á dýrmæt sjónarhorn og hagnýt ráð. 📢 Fylgstu með nýjustu þáttunum hér , allt telur þetta sem endurmenntun í starfi!
Eftir Kristrún Birgisdóttir 7. febrúar 2025
Landshlutaflakkið heldur áfram, en viðfangsefni grunnskólanna eru þau sömu um allt land. Í síðustu viku ræddum við tækifæri í Fjallabyggð til að sameina endurskoðun á viðmiðum aðalnámskrár, og í þessari viku var röðin komin að Bolungarvík. Báðir skólarnir hafa lengi unnið með námsvísa sem leiðarljós í skipulagningu kennslu. Við ræddum ýtarlega möguleikana á að sameina þessa vinnu – að innleiða ný hæfniviðmið og endurskoða skólanámskrárgerðina samhliða, með sérstaka áherslu á gæðanámsmat. Virkilega spennandi! Góð skólanámskrá þarf að vera vel ígrunduð og skiljanleg öllum sem koma að skólastarfinu. Námsumsjónarkerfi þurfa að styðja við ferlið, og hverjum þræði skólanámskrárinnar þarf að fylgja eftir. Það er því upplagt að slá tvær flugur í einu höggi. Þetta er þó alls ekki einfalt – mikilvægt er að taka skynsamlegar ákvarðanir í upphafi og gefa sér nægan tíma til að innleiða breytingarnar vandlega. Það eru margar leiðir til að hefja og vinna innleiðingarferlið. Gæðaráð undir forystu skólastjórnenda ásamt markvissu samráði eru lykillinn að góðum árangri. Hér má sjá mynd sem var teiknuð í Bolungarvík á þriðjudaginn – fyrstu tilraun til að kortleggja þá vinnu sem framundan er við að betrumbæta skólanámskrána og byggja á traustum grunni þeirrar reynslu sem þegar hefur skapast. Öllum er velkomið að nýta sér myndina og lesa úr henni! 😊
Eftir Kristrún Birgisdóttir 7. febrúar 2025
Í Naustaskóla er kennarateymi sem kennir 4. og 5. bekk. Teymið, þær Sunna, Þórey, Hrönn og Kristín hófu í haust að vinna eftir skipulagi um daglega ritun sem unnið er upp úr Ritunarramma Miðstöð menntunar og þjónustu (óbirt drög, 2024). Innra mats teymi Naustaskóla hafði komist að þeirri niðurstöðu að mikilvægt væri að skoða hvernig hægt væri að styðja kennara betur í að fóta sig í þeim kröfum sem birtast í ritunarrammanum og tryggja að nemenedur myndu fást við þær áskoranir sem þar birtast. Kennarateymið í 4. og 5. bekk buðu sig fram við að prófa að vinna með ritunarverkefnin og hafa gert svo frá skólabyrjun í haust. Ritunarverkefnin eru hluti af daglegu starfi, þó að eitthvað hafi þurft að aðlaga þau. Þær hafa þó unnið nánast öll verkefnin samkvæmt áætlun. Í ársskipulagi ritunar, sem fylgir kröfum ritunarrammans, er lögð áhersla á fjölbreytni og unnið með ólíkar tegundir texta, svo sem sögugerð, fræðitexta og rökfærslutexta. Nemendur semja ljóð, taka viðtöl, vinna með yndislestur í gegnum bókaklúbb og margt fleira. „Mánudagsritun“ er fastur liður og hefur leitt til augljósra framfara hjá öllum nemendum, allt frá greinilegum til mikilla framfara. Nemendur eru stoltir af verkefnum sínum, og kennarateymið leitar stöðugt nýrra leiða til að styðja ritun og málfræði í gegnum þessi verkefni. Kennarahópurinn var sammála um að það væri gríðarlega mikill tímasparnaður og öryggi sem fylgdi því að hafa aðgang að svo viðamiklu skipulagi sem þær geti treyst að standist kröfur. Þær tóku fram að þær upplifðu að verkefnin væru krefjandi en þær nýttu sér það til þess að efla hvor aðra sem fagmenn sem skilaði sér í metnaði til þess að setja sig inn í t.d. ljóðagerð og kveðskap! Ein mikilvægustu gæða einkenni teymiskennslu eru að kennarar lyfti hvort öðru upp og efli fagmennskuna - það er greinilega að eiga sér stað í þessu fyrirmyndar kennarateymi. Að sögn kennaranna hafa nemendur algjörlega blómstrað í skapandi vinnu með ritunarverkefni, þær njóta þess að fylgjast með þeim tjá sig á fjölbreyttan hátt og blása út af stolti af eigin verkefnum. Næstu skref hjá hópnum er að efla sig enn frekar í að veita nemendum endurgjöf og endurskipuleggja og samræma útfærslur á stílabókunum sjálfur og velja stærðir og gerðir við hæfi verkefnanna. Við fáum að heyra meira frá Naustaskólateyminu þegar þær koma í heimsókn í hlaðvarpsþáttinn okkar. Í mars kemur út ný sería af þáttum á hlaðvarpi Ásgarðs um menntamál þar sem lögð verður áhersla á gæðamál í menntakerfinu. Ritunarverkefnin - ársskipulag um ritun er aðgengilegur öllum kennurum hér fyrir yngsta, mið- og unglingastig Kristrún
Fleiri færslur
Share by: