Blog Layout

Hvað er góður skóli? Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli

noreply • 12. mars 2024

Kristrún Lind Birgisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs stýrir ráðstefnunni. Aðrir sem fram koma eru: 
  • Þórdís Kolbrún G ylfadóttir Reykfjörð, fjármálará ðherra . Gæðastarfshættir í skólum, fjárfesting til framtíðar. 
  • Nemendur úr Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum - Hvað er góður skóli? 
  • Ásta Bjarney Elíasdóttir skólastjóri Breiðholtsskóla Að breyta orðræðu um og við nemendur. 
  • Arndís Anna Jakobsdóttir aðstoðarskólastjóri í Auðarskóla. Námsvísar í leikskólastarfi. Að hafa yfirsýn yfir gæðastarf með aðstoð námsvísa. 
  • Heimir Árnason formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar ávarpar ráðstefnuna og fjallar um innleiðingu menntastefnu Akureyrarbæjar með gæðaráðum leik- og grunnskóla. Skólaprófíll vísar veginn til umbóta. 
  • Gunnþór E. Gunnþórsson ráðgjafi í Ásgarði. Skoðunarvottorð leik- og grunnskóla á mannamáli. 
  • Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins. Nýsköpun í grunnskólum. Samþætting nýsköpunar, samfélags og atvinnulífs. 
  • Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Brekkuskóla. Að koma á skilvirku gæðaráði og ná árangri með gæðastarfi með skipulögðum hætti. 
  • Héðinn Svarfdal. Fyrirmyndarsamstarf við foreldra í leik- og grunnskólum. 
  • Aðalheiður Skúladóttir skólastjóri Giljaskóla . Að finna leiðir til þess að gæðarýna skipulag læsis og bregðast við niðurstöðum PISA 
  • Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóri Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum. Námsmat með nemendum og foreldrum. 
  • Helga María Þórarinsdóttir leikskólastjóri og Ingi Jóhann Friðjónsson aðstoðarleikskólastjóri í Lundarseli/Pálmholti . Þegar gæðaviðmið segja það sem liggur í loftinu. 
  • Kristrún Lind Birgisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs . Persónumiðað skólastarf fyrir öll börn - það er góður skóli!
  • Karítas Sigurlaug Ingimarsdóttir og Steinunn Ragnarsdóttir. Gæðastarf með 5 ára nemendum við Grunnskóla Bolungarvíkur. 
  • Arna Vilhjálmsdóttir og Maggý Hjördís Keransdóttir kennarar. Valda í Skjalda. Kvikmyndahátíð grunnskólanema á Patreksfirði. Gæðavottað nýsköpunarverkefni.
Nánari upplýsingar á Facebook viðburði ráðstefnunnar eða í tölvupósti asgardur@ais.is 

Hlökkum til að sjá sem flest!

Eftir Kristrún Birgisdóttir 25 Oct, 2024
Markmið menntastefnu Akureyrarbæjar er að skapa framúrskarandi skólastarf sem mætir þörfum allra barna, þar sem fjölbreytni og jöfnuður eru í fyrirrúmi. Öllum þeim sem koma að menntun barna er innprentað traust á getu þeirra til að læra og dafna. Samstaða fjölskyldna og skólasamfélagsins er lykillinn að því að tryggja gæði menntunar, sem er undirstaða góðs samfélags. Fræðslusvið Akureyrarbæjar hefur beitt sér fyrir því að koma á virkum gæðaráðum í öllum leik- og grunnskólum bæjarins. Þessi gæðaráð starfa samkvæmt mælikvörðum menntastefnunnar og sinna innra mati með reglubundnum hætti til að tryggja stöðuga umbótavinnu. Í gær, fimmtudaginn 24. október, komu saman skólastjórar, deildarstjórar og fulltrúar úr gæðaráðum skólanna til að deila reynslu sinni af innra mati liðins skólaárs, ræða um þá umbótavinnu sem hefur átt sér stað og kynna fyrirhuguð umbótaverkefni komandi skólaárs. Þessi samvera veitir tækifæri til að fá dýpri innsýn í skólastarfið og matið, ásamt því að læra af reynslu hvers annars. Við erum afar stolt af því að fá að vera hluti af þessari þróunarvinnu með Akureyrarbæ og teljum okkur lánsöm að fá nú að leggja verkefnin í hendur gæðastjóra leik- og grunnskóla á fræðslusviði bæjarins. Menntastefna Akureyrarbæjar var birt 2020 og gildir til ársins 2025 en þessi dagur stafestir greinilega að hér eru gæðastarfshættir að festast í sessi! Til hamingju Akureyri með framúrskarandi gæðastarf sem heldur áfram að vaxa og dafna ár frá ári!
Eftir noreply 21 Aug, 2024
Kennsla í norsku og sænsku hefst þann 26. ágúst kl. 15.00 í Tungumálaskólanum sem er fjarskóli fyrir nemendur sem eru undanþegnir dönskunámi. Starfsfólk á vegum skóla og ráðgjafarþjónustunnar Ásgarðs (www.ais.is) sér um kennsluna og alla umsýslu. Tímarnir verða á mánudögum milli klukkan 15.00 og 16.00 fram á vor. Við gerum ráð fyrir að nemendur vinni sjálfstætt á milli kennslustunda og geti vonandi nýtt tímann í skólanum á meðan aðrir nemendur eru í dönsku. Hver nemandi fylgir því skóladagatali sem á við þann skóla sem viðkomandi er skráður í.
Eftir noreply 29 May, 2024
Gæði Ásgarðsskóla, skóla í skýjunum hafa verið staðf est, með ytra mati MMR og auðvitað líka með kerfisbundnu innra mati. Námið í skólanum er í samræmi við stefnu skólans, það er sniðið að persónulegum þörfum nemenda, það er unnið lýðræðislega með nemendum, foreldrum og starfsfólk fær þann stuðning sem þarf og innra mat uppfyllir sett skilyrði.
Fleiri færslur
Share by: