Í Ásgarði eru allir jafnir og nemendur hvorki aðgreindir vegna aldurs, kyns, uppruna eða með nokkrum öðrum hætti. Allir nemendur skólans hafa þarfir og tekið er tillit til þeirra – engar þarfir eru “sér” þarfir – eða allar þarfir eru sérþarfir. Námið er sniðið að þörfum hvers og eins og meginmarkmið okkar er að finna fjársjóðinn sem leynist í hverju barni og kveikja eldmóð og áhuga fyrir námi.
Nemendur vinna í teymum eða sjálfstætt en er ekki er skipt í bekki. Nemendur gera sínar eigin námsáætlanir í samvinnu og samstarfi við kennara sína og foreldra. Viðfangsefnin stjórnast af grunnþáttum og þemum en nánari útfærslur eru alltaf í höndum nemenda.
Það er lykilatriði að allir nemendur bæti sig sem námsmenn og verði í hverju skrefi hæfari til að bera vaxandi ábyrgð á námi sínu og smám saman skipulagt það af eigin rammleik. Með hverju skrefi nálgast nemandinn hæfni til að hefja nám í framhaldsskóla. Ásgarður er öruggt umhverfi sem gerir nemendum kleift að æfa sig sem sjálfstæðir námsmenn og fá að taka örugg skref út í lífið með viðfangsefnum sem henta hverjum og einum.
Hin óyggjandi vitneskja um að nám fari stöðugt fram er í senn uppeldisfræðileg og kennslufræðileg stefna Ásgarðs. Vaxtarhugarfar er ríkjandi á öllum stigum í starfsemi Ásgarðs. Það er sérstakt markmið að nemendur og kennarar tileinki sér vaxtarhugarfar og hafi trú á því að æfingin skapi meistarann og að kennarar og foreldrar tileinki sér að styðja við og horfa á námsferlið sem sigur í sjálfu sér. Mistök eru mikilvæg til að læra af og við hvetjum hvert annað til að taka áhættu. Ásgarður er öruggur staður til að gera tilraunir, viðra skoðanir sínar og vaxa. Við þetta styðja fjölbreyttir kennsluhættir þar sem gert er ráð fyrir sjálfstæði og samvinnu í vinnubrögðum.
Í Ásgarði er áhersla á vaxtarhugarfar með megináherslu á stuðning við jákvæða hegðun. Misbrest á hegðun er leitast við að leiðrétta með leiðum sem einkennast af umhyggju, virðingu, reisn og festu.
Það er skýr stefna skólans að komið sé fram við alla af virðingu og að allir hafi jafnan rétt á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Lögð er megináhersla á að allir geri sitt besta og leggi sig fram um að bæta eigið umhverfi sem og líf sitt og annarra. Gengið er út frá því að allir geti fylgt stefnu skólans en stutt er við þá sem þarfnast frekari stuðning við að tileinka sér þátttöku í skólabrag þar sem virðing er höfð að leiðarljósi.
Vaxtarhugarfar og námsmenning leiðsagnarmats á að einkenna skólabrag Ásgarðsskóla, að skólasamfélagið hafi trú á því að við séum öll stöðugt að bæta okkur með því að takast á við áskoranir.
Með því að nemendum sé mætt þar sem þeir eru staddir og með því að þeir upplifi traust og hvatningu til að taka taka þátt í skólastarfinu eykur starfsfólkið líkur á því að gagnkvæm virðing og jákvæðni verði einkennandi í samskiptum starfsfólks og nemenda.
© 2022 Ásgarður AIS ehf
Við erum alltaf á vaktinni, Sendu okkur línu eða skilaboð asgardur@ais.is – 8999063